Nágrannar

Veit ekki hvort ég þarf að hringja á lögregluna, það býr einstæður gaur niðrá annari hæð. Hann er núna búinn að blasta Céline Dion  í tæpa tvo tíma á fermingargræjunum sínum. Þetta hlýtur að vera öskur á HJÁLP......

Annarskonar stuð var á hjónunum á fjórðu hæðinni um daginn , ég lá vakandi um nóttina er kunnuleg rúmgaflshljóð byrjuðu, varði þetta í þó nokkurn tíma en fóru svo leikar að herðast og hugsaði ég með mér að á þessum hraða endist enginn lengi, auðvitað hafði ég rétt fyrir mér er hinn magnþrungni endir laust yfir og rúmagaflinn ætlaði af í látunum. Kunni ekki við að fara upp og óska honum til hamingju með nýtt persónulegt met og um leið nýtt blokkarmet. Held samt að hann hafi vitað að ég vissi það þegar ég mætti honum í stiganum daginn eftir. Séríjósbros allan hringinn,,,,hann franskur og ég íslenskur,  tungumálið sem talað var ............. karlmENSKA.

Staðan er 1:0 , Frökkum í vil......

plan.................... 

Þarf því að fara að kaupa mér rúmgafl.....og svo troða eyrnartappa í konu og barn svo þau sofi nú örugglega meðan ég negli gaflinum í vegginn í heilar 5 mínútur og 15 sekúndur, ,,,,heilum fimmtán sekúndum lengur en  fransmaðurinn og heilli mínútu yfir portúgalanum við hliðina..

Er þetta svindl....já,,, en mér til varnaðar er þá er konan ólétt,, einu metin sem ég slæ með henni á næturnar núna  eru "hversu fljótur ertu í ískápinn og til baka"

Þörfin fyrir  alþjóðlega virðingu í blokkinni er líka svo mikil. Að geta mætt hinum í stiganum sem ríkjandi BLOKKARKÓNGUR er eitthvað sem mig hefur dreymt um svo lengi........þetta snýst um virðingu. .og ekkert annað. Ef ég á að geta látið sjá mig í blokkinni þá þarf ég að  fara láta heyrast í mér.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ji minn eini. Og fórstu ekkert að athuga með Mr. Dion? Ef þú hefðir bjargað honum úr nauð væri Blokkarkóngstitillinn þinn í þó nokkurn tíma allavega

Jóna Á. Gísladóttir, 6.5.2007 kl. 00:34

2 identicon

Let me get this Straight.....

Þú ert að fara að FEIKAÐA eins hátt og lengi og þú getur til að verða talinn Kynlífsmeistari og fá virðingu frá fólki sem þú þekkir ekki neitt og talar ekki sama tungumál og þú, einu samskiptin eru augngotur í sekúndubrot í stigaganginum ???

Gangi þér vel ekki slasa þig í "Kynlífinu" 

hjalti (IP-tala skráð) 6.5.2007 kl. 21:17

3 Smámynd: Eybjór

þú skilur þetta ekki,,,,,,, enda hefur rúmgaflinn þinn eins og minn verið atvinnulaus í marga mánuði. Þú ferð aðrar leiðir, byrjar að mæla karlmennskuna í öðrum hlutum....t.d. módelsmíðum.......Ég svindla,,,Sjálfsbjargarviðleitnin er stundum ljót.......

Dion byrjaði staðfastlega klukkan 10 í morgun, eftir að hann slökkti á í gærnótt gerði ég fastlega ráð fyrir að maðurinn hefði náð meðvitund og slökkt á óskapnaðinum........ Hinsvegar læðist sá grunur að mér að þetta sé spilað með fullri meðvitund....Ég hef ekki þori ekki að fara niður og banka. Vill ekki sjá inn í íbúðina sem er örugglega heimili vitfirrts manns. Ætla að hringja  í DEXTER

Eybjór, 7.5.2007 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband