ÞEGAR GEIMVERURNAR RÆNDU MÉR

í þau 11 ár sem ég er búinn að vera með konunni hef ég ávalt haldið fast í þá sögu mína að geimverur hafi rænt mér við níu ára aldur, eftir þá reynslu hafi mig vantað  ákveðinn drifkraft sem hún virðist alltaf sjá í öðrum karlmönnum.. Hún hefur hingað til allan tímann haldið því fram að ég væri bara latur og fundist sagan mín fráleit og undirritaður barnalegur....en ég hef þó þrjóskast til og haldið mig fast við sömu söguna, passað mig sérstaklega á að gefa sömu staðreyndir og ekki látið hanka mig á því að vera tvísaga......

Geimverur rændu mér er ég var að hoppa á túninu heima, ég fann mjög kaldan gust um bakið á mér og skært ljós sem blindaði mig á augabragði.....gríðalegur þrýstingur og búmm allt svart.....man ekki eftir neinu,  nema að undaleg lykt situr ennþá í minningunni...... ómögulegt var að giska á tíma, en mér var skilað uppá hlaði....allur blautur.....

Auðvitað var mín fyrsta hugsun að annarhvor eldri bræðra minn hafi komist aftan að mér og rotað mig með skóflu enn einu sinni ..... en svo kom í ljós að svo var ekki.....þeir höfðu á sama tíma fundið eitt gamalt skot  í  riffilinn hans afa og voru að rífast um hvor ætti að skjóta hvern......

Í dag gerðist sá merkilegi atburður að þegar ég var að reyna að koma mér undan sokkasamstæðu þrælavinnu með þessarri sögu minni stoppaði konan mín mig af og spurði - Eyþór er þetta satt....

Ég auðvitað tók mér smá tíma og settist niður og sagði henni hversu gríðalega mér þætti vænt um að loksins eftir öll þessi ár væri  einhver byrjaður að hlusta á reynslu mína með opnum huga....

hún hikaði aðeins í hugsun og þá bætti ég við 

Að þó ég gerði mér fullkomlega grein fyrir mikilvægi þess að að raða þessum sokkum saman  þá hefðu helvítis geimverurnar stolið af mér framtaksseminni.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er búinn að sjá mikið um þetta í bíómyndum og er búinn að greina þitt atvik. Þetta er klassísk frásögn manns sem hefur verið brottnuminn og mun ég nú skýra þetta lið fyrir lið: 

Þú talar um kaldan gust upp bakið: Þeir voru að afklæða þig á sekúndu broti með laserum sem skera af þér fötin (sjá spaceballs) .

þar á eftir sérðu bjart ljós sem blindar þig: það mun vera flassið sem lætur þig gleyma öllu en því miður virkar það ekki alltaf (sjá MIB og MIB 2).

Gríðarlegur þrýstingur: Þarna er anal probe-inn eða endaþarms kanninn að vinna sýna vinnu, ekki ólíklegt að þú finnir fyrir miklum þrýstingi eða öðrum óþægindum í einstefnu götunni (Sjá South Park season 1, Cartman gets an anal probe)

Búmm og allt svart: þarna eru þeir búnir að rannsaka þig á alla vegu, svæfa þig og skila þér aftur. Þú hefur líklega legið í grasinu meðvitundarlaus í einhvern tíma og einhver beljan nýtt tækifærið og létt á sér á þig svo það útskýrir skrýtnu lyktina (innskot höfundar).

Fólk sem lendir í þessu verður oft utanveltu og stefnulaust því það missir sig í að hugsa um hvað varð um tímann sem það missti eða hvað gerðist á þeim tíma, svo Jóna gefðu manninum smá slaka, hann hefur greinilega lent í svaðalegum atburðum og á eftir að vinna úr þeim..... 

hjalti (IP-tala skráð) 6.6.2007 kl. 21:03

2 Smámynd: Eybjór

Takk fyrir að auka skilning á minn á þessum hlut, hjálpar mér mikið er niðurbældar minningar barnæsku minnar brjótast fram á ofsafenginn hátt...... Auðvitað er líka erfitt að koma fram opinberlega og viðurkenna það að hafa verið brottnuminn af geimverum,,,,fólk sýnir að jafnaði mikið skilningsleysi sem jaðrar oft við  fordóma gagnvart fólki sem einungis hefur lent í því að vera brottnumið af geimverum í vísindarannsóknir...... vonandi mun mín saga hvetja aðra í að opna sig og sannleikurinn verði loksins  frjáls

Eybjór, 6.6.2007 kl. 23:15

3 Smámynd: Björgmundur Örn Guðmundsson

Ég hef aldrei rotað þig með skóflu... svo ég muni.

Björgmundur Örn Guðmundsson, 16.6.2007 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband