2.5.2007 | 23:09
Klósett
Sá í fréttunum áðan eitthvern danshóp sem ætlar að halda sýningu í þjóðleikhúsinu, rosalega flippað að hafa sýninguna á klósettinu fannst þeim, svona táknrænt fyrir aðstöðuleysi dansins á Íslandi
Þetta er nákvæmlega ástæðan afhverju skemmtilegt listafólk á ekki að stjórna landinu.
Ég meina það er rosalega töff að hafa sýninguna á klósettinu..... eiginlega alveg þangað til einhver þarf að fara Á klósettið!!!
Annars fór maður að spá, á geðdeildum borgarinnar var komið upp rúmi á klósettinu vegna skorts á plássi og síðan þetta, heil danssýning. Hvað næst ..... náttúruminjasafninu vantar pláss er það ekki......erum við kannski að tala að um almenningsklósettið á Hlemmi fyrir það?
Ég legg til að næstu borgarstjórnarfundir verða haldnir inn á klósetti ráðhússins. Alveg þangað til þeir laga þetta allavega....Klósett eiga bara þjóna einum tilgangi...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.