Bitur

Hringdi í ríkisstarfsmanninn í gær, alltaf hægt að hringja í hann á vinnutíma, aldrei upptekinn. Óskaði hann mér til hamingju með afmælið og spurðist fyrir um hvað ég hefði fengið í gjafir, lét ég honum í té þær upplýsingar að mér hefði áskotnast líkamsræktarkort frá konunni minni......

Kom þá þögn á hinum endanum,  ekki samt venjuleg þögn, maður heyrði að hann var einungis að taka sér tíma, var að undirbúa sig, stundum heyrir maður þegar ræða er á leiðinni, að hinn aðilinn er einungis að taka saman hráefnið áður en hann matreiðir ofaní mig rétt visku sinnar..

Svo kom það,  hann ákveður að hefja sitt mál með spurningunni, og hvað ætlar þú að gefa henni.... ryksugu?...Ég sagðist ekki skilja spurninguna,, hann heldur áfram, hvað heldur þú að konan þín sé að meina með þessari gjöf ,, ég svara: veit það ekki, ekkert spáð í það og ég efast um að hún hafi eitthvað gert það,,,,,,, áður en ég næ að klára, spyr hann: ef þú rifjar það upp, hefur konan þín einhverntímann gert eða sagt eitthvað án þess að vilja/meina einhvað með því?.......ég hugsaði mig og eftir að hafa hlýtt á ræðuna hans til enda var hið óumflýjalega svar,,,NEI það liggur alltaf eitthvað á bakvið allt sem þær gera/segja.

Og þá var eins og það heltist yfir mig sannleikurinn  

"Ég vill hafa þig svona"  "þú ert miklu flottari en íþróttaþjálfarinn" "Og að ógleymalega frasanum, "ég elska þig eins og þú ert"  var bara lýgi hjá henni, ég meina hún gaf mér líkamsræktarkort í afmælisgjöf........

Nú er ég bara bitur,,,,,ætla að leyfa mér að vera  það í smá stund,,,,,veistu  núna þegar ég hef komist að því að konur eru undirförular hef ég með þessum nýju sannleiksgleraugum tekið eftir ýmsu torkennilegu.

T.d. var frétt um daginn þar sem haldið var fram að aðeins 30% kvenna fengju fullnægingu með samförum....veistu hvað ég held,,,ég held að þær fái ALLAR fullnægingu, en 70% af þeim FEIKI það að fá hana EKKI ,,,,,bara til að halda karlmanninum óöruggum með sjálfan sig..........spáið í því strákar....... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú ert sannfærður um að hún hafi gefið þér þetta kort til að halda þér undirgefnum og niðurbrotnum þá getur þú notað sama trikk á hana, getur gefið henni svaka flottan en of lítinn kjól t.d. eða aðra flík sem ekki er hægt að skipta eða skipt um miða inn í flíkinni, þ.e.a.s. segjum að konan þín sé Medium þá kaupir þú Small flík og setur Medium miða inn í hana.

Þetta er kannski ekki mjög uppbyggileg eða sambands byggjandi ráð en hefnd er hefnd og hún byrjaði...

Til hamingju með Afmælið í Gær

Hjalti (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 09:36

2 Smámynd: Eybjór

Skil hvað þú ert að fara, "beat them at their own game" eins og einhver sagði,,,, og satt hjá þér hún byrjaði.... vandamálið með fatatrikkið er að þetta myndi virka ef hún væri ekki ólétt ,akkúratt núna Hjalti er henni nákvæmlega sama þótt hún passaði ekki í sirkustjald.....eða flóðhestagrímubúning....

Eybjór, 27.4.2007 kl. 11:17

3 identicon

Ég er kominn með það...

Fáðu þér einhverja svakalega skutlu sem training buddy eða einkaþjálfara og búðu til allskonar scenario sem gera konuna þína abbó, þú getur til dæmis látið hana hringja í þig og skilja eftir skilaboð til þín, konan þín svarar í símann og kallar svo í þig: "Eyþór, Sindý einkaþjálfarinn þinn var í símanum og vill fá þig í nudd og svo gufu á eftir, þú átt að mæta kl 10 og hafa Speedóinn með henni finnst þú svo flottur í honum". Eftir nokkrar vikur biður hún þig um að hætta í ræktinni...

hjalti (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 14:20

4 Smámynd: Eybjór

Ok ég semsagt komin með á einhvern ótrúlegan hátt einkaþjálfara sem er ekki aðeins svakaleg skutla heldur heitir einnig Sindý,,,,og þá er það þitt besta ráð að ég komi mér út úr þeirri stöðu......þetta gengur ekki alveg upp hjá þér???

ps
Ég fékk ekki bjór þessa helgina,,,,,,hvað er í gangi eiginlega

Eybjór, 27.4.2007 kl. 23:56

5 identicon

Skil þig, vilt halda einkaþjálfaranum og vinna orrustuna við konuna þína, ekki auðvelt mál þarf að hugsa þetta aðeins betur. Við þurfum eitthvað lymskulegra en nokkurn tíma áður...

Hef samt grun um að þú sért samt að tala undir rós, ég meina líkamsræktarkort í afmælisgjöf (aðeins svitalyktareyðir gefur skýrari skilaboð) og enginn helgarbjór?

Þú hefur gert einhvern fjandann sem þú ert ekki að segja frá.

hjalti (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 00:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband