27.4.2007 | 10:46
Nostradamus
Nostradamus, geðsjúklingur eða snillingur?
Hef verið að stúdera þennan mann svolítið, þar sem hann talar í gátum hef ég þróað með mér minn eigin dulmálslykil, nú liggur framtíðin mér ljós. Þriðja Heimsstyrjöldin er að bresta á, síðasta en versta blóðbað heimssögunar.... í lok hennar mun rísa mikill leiðtogi frá Íslandi, alheimsleiðtogi, Nostradamus kallar hann rauðskegg......
Ég vill svo sem ekki tala meira um þetta hérna, skil þó eftir slóða hér fyrir neðan fyrir þá sem vilja kynna sér þetta betur. En þó vill ég segja þetta, þegar kallið kemur mun ég ekki skorast undan, ég mun heiminum til heilla taka á mig þetta hlutverk sem mér var ætlað.
Auðvitað er mér svolítið órótt, ég meina, það er mikil vinna að verða alheimsleiðtogi,,,,en samt finn ég jafnframt fyrir ákveðni ró, ég vissi alltaf að mér væri ætlað hlutverk í lífinu, nú er áralöng leit á enda, ég hef fundið köllun mína,. Veit ekki hvað ég get bloggað mikið meira hérna, næstu mánuðir munu fara í stífa undirbúningsvinnu fyrir alheimsleiðtogahlutverkið sem ég var ekki búinn að sjá fyrir. Hef auðvitað til þessa verið að bíða eftir að ofurhetjuhæfileikar mínir myndu koma í ljós, og hefur allur minn undirbúningur farið í það.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.