18.2.2008 | 23:16
það þarf að fara að uppfæra þetta
Hvaða GULL. var spurt og áframhaldandi flutningur settur á bið.
Gull þýðir dót var svarað.
Dót,,,segðu þá bara dót, hversvegna ertu að segja gull þegar þú meinar dót
Var lítið um svör, og lagi breytt
Mamma geymir dótin þín
Gamla leggi og völu............... flutningur stoppaður aftur, hin óumflýjalega spurning kom... HVAÐ er það?
Það eru leikföng var svarið.......
Leikföng ég á enga svona leggi.... texta breytt....
Sofðu unga ástin mín
úti regnið grætur
mamma geymir dótin þín
playmóið og Leift mqkvín
við skulum ekki, vaka um miðjar nætur.
Í lok flutnings var mér tilkynnt enn og aftur að söngur minn væri hrikalegur miðað við móðir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.