13.3.2007 | 23:31
Tölvutengdur á ný
Kári er vel þjálfuður, hann var beðinn um að ná í bjór fyrir pabba sinn, í skápnum voru 3 maltflöskur og þrír bjórar, hann fór inn í ískáp og kom aftur með bjórinn, bauð svo afa sínum og ömmu bjór líka, fór aðra ferð og kom hina tvo, tveggja ára og klikkaði ekki á þessu. þegar hann rétti pabba sínum bjórinn kom liverpool maður í nærmynd. þá öskraði hann " þessi er lélegur"
Ég er karlmaður og græt ekki, en maður á sín erfiðu tímabil.... svoldið klökkur svona
Staðreind: Ef vinstri grænir fengju að ráða þá væri bjór ennþá bannaður !!!!!! las þetta eitthverstaðar, varð agndofa, Er að drekka einn akkúrat núna.
Stór varnargarður fyrir ofan okkur, þegar maður horfir á hann fer maður að hugsa hvort skriðuhætta sé af honum sjálfum en það er víst ekki.
Hérna búa mörg þjóðerni, mjög þæginlegt, bara brosað og sagt góðann daginn. Svona alþjóðlegur blær yfir þessu. Mér líður eins og ég sé í útlöndum.
Brjóstin á Jónu eru ekki ennþá sprungin. mjög gott mál, er byrjaður að halda að hún haf aðeins verið að ýkja ástandið, í besta falli vanmetið stöðuna aðeins, er komin á þá skoðun að kvenmannsbrjóst geti ekki sprungið
Lenti í því um daginn að opna þrjá (ég endurtek þrjá ) tekexpakka út af undalegri lykt, auðvitað skipti ég líka út smjörinu og ostinu, hún vill semsagt sex smurð tekex með osti um LEIÐ og hún finnur til svengdartilfinningu. Mátulegt magn að smjöri verður náttúrulega að vera á kexinu og skiptir líka máli hversu dreift smjörið er smurt. Hlutfall smjörs og osts verður líka að vera rétt annars er kexinu skilað umsvifalaust. Ég smurði semsagt 18 tekex sem voru á endanum ekki borðuð . Varð niðurstaðan í málinu sú að ég hafi keypt vitlausa tegund að tekexi (hélt að vísu að það væri bara ein tegund, en var ekkert að minnast á það) Kári át þetta hinsvegar allt daginn eftir, mjög ánægður og minntist ekkert á lyktina.
Vegna óeðlilega mikis lyktnæmis hennar hefur öllum verið bannað að prumpa á heimilinu. "Sameiginleg" niðurstaða varð sú að viðrekstur væri hvors sem er stórlega ofmetinn þörf.
Ekki þarf að taka það fram að ég smurði öll þess kex með slitið liðband á vinstri löpp.
Sé núna að ég hef gert hræðileg mistök, ég hef ekki minnst einu orði um klámráðstefnuna eða smáralindarbæklinginn, og núna er það bara búið. verð að reyna vera meira svona current,,,á púlsinum um mál líðandi stundar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.